Um PLAY
Leikvöllur í háloftunum!
PLAY er íslenskt lággjaldaflugfélag sem sett var á laggirnar vorið 2019 með höfuðstöðvar á Íslandi. PLAY leggur sig fram um að bjóða lágt verð til skemmtilegra áfangastaða og flýgur þangað á nýlegum Airbus flugvélum.
Hjá PLAY er öryggi ávallt í fyrsta sæti og rík áhersla lögð á stundvísi, einfaldleika, gleði og hagstætt verð.
Stjórn PLAY
Framkvæmdastjórn PLAY
Einar Örn Ólafsson, forstjóri
Einar Örn Ólafsson hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og fjárfestir. Hann hefur verið meðeigandi að fjárfestingarfélaginu Stoðum sem og stjórnarmaður meirhlutaeiganda þess. Einar var áður framkvæmdastjóri Fjarðalax, forstjóri Skeljungs en þar áður var hann í ýmsum stjórnunarstöðum í bankageiranum. Áður en hann tók við sem forstjóri PLAY var hann stjórnarformaður félagsins.
Einar er með MBA-gráðu frá NYU, Stern School of Business og BSc-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Arnar Magnússon, aðstoðarforstjóri
Framkvæmdastjóri (COO) og stofnandi
Arnar Magnússon er framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs og einn af stofnendum PLAY.
Arnar hefur mikla reynslu af stjórnunarstörfum en hann býr að 17 ára reynslu af störfum í flugrekstri. Arnar starfaði áður hjá WOW air og gegndi þar m.a. stöðu flugrekstrarstjóra og framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs.
Arnar útskrifaðist sem flugmaður frá Oxford Aviation Academy árið 2007 og hefur m.a. starfað sem flugstjóri og þjálfunarflugstjóri hjá WOW air og Ryanair. Hann var jafnframt yfirflugstjóri WOW air áður en hann tók við stöðu flugrekstrarstjóra fyrirtækisins.
Daníel Snæbjörnsson
Framkvæmdastjóri (CNO)
Daníel Snæbjörnsson er framkvæmdastjóri leiðakerfis- og áætlunarsviðs PLAY og hannar því leiðakerfi PLAY auk þess að fylgjast með þróun á mörkuðum og leita nýrra og spennandi áfangastaða fyrir félagið.
Daníel er með M.Sc. gráðu í flugrekstrarfræði frá Cranfield University, B.Sc. gráðu í flugrekstrarfræði frá Embry Riddle Aeronautical University, einkaflugmannspróf og hefur lokið tveimur prófum hjá CFA-stofnuninni.
Áður en Daníel hóf störf hjá PLAY starfaði hann hjá Icelandair í leiðakerfis- og áætlunardeild.
Á árunum 2014 til 2019 starfaði Daníel sem framkvæmdastjóri leiðakerfisstjórnunar hjá WOW air. Fyrir það stofnaði hann og rak ráðgjafarfyrirtækið Altitude Aviation Advisory í Bretlandi. Frá 2006 til 2013, starfaði Daníel sem ráðgjafi hjá AviaSolutions/GECAS og sem greinandi hjá Ascend Worldwide. Frá 2004 til 2005 starfaði Daníel á flugrekstrarsviði hjá Íslandsflugi og Air Atlanta Icelandic.
Georg Haraldsson
Framkvæmdastjóri (CIO)
Georg Haraldsson er framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs PLAY. Hann ber ábyrgð á stafrænni þróun og upplýsingatæknimálum félagsins.
Georg hefur fjölbreytta reynslu. Hann vann sem deildarstjóri rafrænnar sölu og markaðsdreifingar hjá Iceland Express um 6 ára skeið. Á árunum 2014 til 2017 var Georg búsettur í Dubai, þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri Marorku í Mið-Austurlöndum og leiddi þar uppbyggingu félagsins á fjarmörkuðum. Áður hefur Georg starfað við viðskiptastýringu hjá Iceland Travel og stafræna þróun og markaðssetningu hjá Völku, Iceland Express og Dohop. Þá sinnti Georg einnig starfi forstöðumanns stafrænna lausna og upplýsingatæknisviðs Póstsins.
Georg er tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og er einnig með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og IE Business School.
Jónína Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri (CPO)
Jónína Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri mannauðssviðs PLAY og leiðir mannauðs- og launamál félagsins ásamt því að hafa umsjón með búningum flugliða, vinnuferðum starfsfólks og skrifstofu PLAY í Vilníus.
Jónína er viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun í ferðaþjónustu frá Strathclyde Háskóla í Skotlandi. Hún hóf feril sinn í mannauðsmálum árið 2005 sem ráðgjafi í ráðningum hjá Capacent. Þaðan lá leiðin til Advania, en þar starfaði hún sem forstöðumaður mannauðssviðs frá 2012 til 2015. Jónína tók við stöðu framkvæmdastjóra mannauðssviðs WOW air árið 2015 og hélt utan um mannauðsmál félagsins í gríðarlegum vexti þess allt til ársins 2019.
Jónína situr í stjórn Sjúkratrygginga Íslands og var áður stjórnarmaður í Lundi ses.
Sonja Arnórsdóttir
Framkvæmdastjóri (CCO)
Sonja Arnórsdóttir er framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs PLAY.
Sonja er með BS-gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur starfað við tekjustýringu hjá flugfélögum síðastliðin 12 ár. Hún starfaði sem sérfræðingur í tekjustýringu hjá WOW air þar sem hún leiddi tíu manna teymi og þá hefur hún starfað sem forstöðumaður tekjustýringar og sölu hjá PLAY frá 2019. Sonja ber ábyrgð á öllum sölu- og markaðsmálum hjá PLAY.
Sigurður Örn Ágústsson
Framkvæmdarstjóri (CBO)
Sigurður Örn Ágústsson er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá PLAY.
Hann á að baki langan feril í flugrekstri en hann var áður forstjóri og stjórnarformaður Bláfugls ásamt því að sitja í stjórn Avion Express. Hann átti einnig stóran þátt í samningaviðræðum og undirbúningi nokkurra stórra fyrirtækjakaupa fyrir Avia Solutions Group (ASG), þar með talið Avion Express, SmartLynx og Bláfugl.
Sigurður Örn er með BA-gráðu í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands og MBA-gráðu frá Katz Graduate School of Business (University of Pittsburgh).